Lífið

Létu rigningaflóð ekki koma í veg fyrir brúðkaupið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ótrúlegar aðstæður í brúðkaupi.
Ótrúlegar aðstæður í brúðkaupi.
Jobel Delos Angeles var ekki á því að fresta brúðkaupi sínu á Filippseyjum á dögunum en þá gekk hún í það heilaga með Jeff eiginmanni sínum, og unnusta til sjö ára.

Mikil rigning hafði verið á svæðinu síðustu vikur og gríðarlega flóð á svæðinu. Saman á parið tvö börn og var kirkjusalurinn þar sem brúðkaupið fór fram í raun á bólakafi.

Það stöðvaði ekki parið og fóru þau alla leið á þessum mikilvæga degi en nú er mikið rigningatímabil á Filippseyjum. 

Myndband úr brúðkaupinu gengur nú eins og eldur í sinu um netheima og má þar glögglega sjá að aðstæður hefðu getað verið betri.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×