Golf

Þjálfari Ólafíu: Allt í rétta átt en nú þarf hún að ná inn á topp tuttugu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Derrick Moore, þjálfari Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur, segir að hún geti vel náð að tryggja sér þáttökurétt á LPGA-mótaröðinni á næstu leiktíð.

Eins og stendur er Ólafía í sæti númer 137 en hún þarf að komast á topp hundrað til þess að tryggja sér þáttökurétt á næsta tímabili.

Það hefur komið smá bakslag hjá Ólafíu upp á síðkastið. Hún hefur bara komist í gegnum niðurskurðinn fimm sinnum af síðustu nítján mótum en afhverju?

„Þetta er allt í rétta átt en nú þarf ekki bara að komast í gegnum niðurskurðinn heldur ná inn á topp tíu eða tuttugu til að ná í stig,” sagði Moore í kvöldfréttum Stöðvar 2.

„Hún missti stundum einbeitingu á síðustu holunum til þess að klára hringinn. Hún var að spila vel en þá komu mistök hér og þar sem gerði það að verkum að hún fór að hugsa um niðurskurðinn.”

„Ég tel að hún geti vel náð þessu. Hún sendi mér í gær að henni fannst hún vera að slá vel og nýbúin að hitta púttsérfræðing úti. Það vantar að breyta smáatriðum hér og þar þá er hún að koma því í gegn.”

Allt innslagið má sjá hér í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×