Menning

Heiðraður fyrir framlag sitt til menningarmála

Stefán Árni Pálsson skrifar
Smári Guðmundsson með viðurkenninguna.
Smári Guðmundsson með viðurkenninguna.
Leikskáldið og tónlistarmaðurinn Smári Guðmundsson hlaut í gær viðurkenningu Ferða-, safna- og menningaráðs Sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis fyrir framlag sitt til menningarmála.

Viðurkenningin var afhent á setningarhátíð Sandgerðisdaga sem fór fram í Safnaðarheimilinu í Sandgerði.

Smári er höfundur og tónlistarstjóri söngleiksins Mystery Boy sem Leikfélag Keflavíkur setti upp á síðasta leikári. Mystery Boy var valin áhugaleiksýning ársins og sýnd í Þjóðleikhúsinu nú í maí.

Þá hefur hann samið og flutt tónlist sem hefur snert við fólki og farið hátt á vinsældarlistum með hljómsveit sinni Klassart auk þess að taka þátt í ýmsum tónlistartengdum verkefnum í gegnum tíðina.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×