Körfubolti

Collin Pryor og Danero Thomas í æfingahóp landsliðsins

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Danero og Pryor í baráttunni fyrr í vetur. Þeir eru nú báðir samherjar í íslenska landsliðinu
Danero og Pryor í baráttunni fyrr í vetur. Þeir eru nú báðir samherjar í íslenska landsliðinu vísir/andri marinó
Tveir nýliðar eru í æfingahóp íslenska körfuboltalandsliðsins fyrir komandi leiki í forkeppni EM 2021. Fjórir leikmenn í hópnum hafa ekki leikið A-landsleik.

Landsliðsþjálfarinn Craig Pedersen boðaði 24 leikmenn til æfinga í lok mánaðarins. Collin Pryor og Danero Thomas eru nýliðar í hópnum en þeir fengu báðir íslenskan ríkisborgararétt í sumar.

Emil Barja og Kristján Leifur Sveinsson eru einnig í hópnum en hvorugur þeirra hefur spilað A-landsleik fyrir Ísland.

Ísland mætir Portúgal ytra 16. september í fyrsta leik sínum í forkeppni EuroBasket 2021 en fyrst spilar liðið tvo æfingaleiki við Noreg ytra í byrjun septemer.

Samkvæmt reglum FIBA má einn leikmaður leika með landsliði hverju sinni sem veittur hefur verið annar ríkisborgarréttur eftir 18 ára aldur en þann sem hann hafði frá fæðingu.

Pavel Ermolinskij gaf ekki kost á sér í verkfnið og Sigtryggur Arnar Björnsson er enn að ná sér af meiðslum. Jón Axel Guðmundsson og Breki Gylfason eru við nám í Bandaríkjunum og komast ekki frá. Dagur Kár Jónsson er við æfingar með sínu nýja liði í Austurríki.

Leikmannahópurinn sem boðaður eru til æfinga:

(Leikmenn eru merktir hjá þeim liðum sem þeir eru skráðir í hjá KKÍ)



Collin Pryor · Stjarnan

Danero Thomas · Tindastóll

Elvar Már Friðriksson · Denain, Frakkland

Emil Barja · Haukar

Emil Karel Einarsson · Þór Þorlákshöfn

Gunnar Ólafsson · Keflavík

Haukur Helgi Pálsson Briem · Nanterre 92, Frakkland

Hjálmar Stefánsson · Haukar

Hlynur Bæringsson · Stjarnan

Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík

Jón Arnór Stefánsson · KR

Kári Jónsson · Barcelona, Spánn

Kristinn Pálsson · Njarðvík

Kristjan Leifur Sverrisson · Haukar

Kristófer Acox · Denain, Frakkland

Maciej Baginski · Njarðvík

Martin Hermannsson · Alba Berlin, Þýskaland

Matthías Orri Sigurðarson · ÍR

Ólafur Ólafsson · Grindavík

Pétur Rúnar Birgisson · Tindastóll

Ragnar Nathanaelsson · Njarðvík

Tómas Hilmarsson · Stjarnan

Tryggvi Hlinason · Monbus Obradorio/Valencia, Spánn

Ægir Þór Steinarsson · Stjarnan




Fleiri fréttir

Sjá meira


×