Viðskipti innlent

Bannað að hefta vefverslun á EES

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Vefverslun hefur stóraukist á undanförnum árum.
Vefverslun hefur stóraukist á undanförnum árum. Vísir/Getty
Ný reglugerð ESB, sem verður innleidd 2. desember næstkomandi, gerir seljendum vöru og þjónustu skylt að veita öllum neytendum rétt til viðskipta á Evrópska efnahagssvæðinu (EES).

Hingað til eru mörg dæmi þekkt þess efnis að neytendur hafi ekki getað fengið vöru eða þjónustu keypta nema að vera búsettir í því landi þar sem netverslunin er starfrækt eða að seljandi hafi ákveðið að selja eingöngu til ákveðinna landa. Þegar tilskipunin tekur gildi verður slíkt óheimilt.

Sem fyrr segir verður tilskipunin innleidd í ESB-ríkjum eigi síðar en 2. desember. Í frétt á vef Neytendastofu segir að innleiðing reglnanna hér á Íslandi muni væntanlega, venju samkvæmt, eiga sér stað nokkru síðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×