Íslenski boltinn

Velskur dómari á leik KR og ÍBV

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
KR-ingar þurfa að taka fram enskuna ætli þeir að kvarta í dómaranum á morgun
KR-ingar þurfa að taka fram enskuna ætli þeir að kvarta í dómaranum á morgun vísir/bára
Walesverjinn Rob Jenkins mun dæma leik KR og ÍBV í 18. umferð Pepsi deildar karla á morgun, sunnudag.

KSÍ hefur síðustu ár tekið þátt í skiptidómaraverkefnum með evrópskum knattspyrnusamböndun og er þetta hluti af því.

Jenkins er 29 ára og er vanalega við störf í velsku úrvalsdeildinni. 

Jenkins kemur ekki einn til landsins því Martin Roberts verður einn af aðstoðardómurum hans. Hinn aðstoðardómarinn er Jóhann Gunnar Guðmundsson. Helgi Mikael Jónasson verður fjórði dómari.

KR og ÍBV mætast á Alvogenvellinum klukkan 14:00 á morgun. KR er með 27 stig í 4. sætinu og er með þriggja stiga forystu á FH og Grindavík fyrir neðan sig. ÍBV er með 22 stig og gæti því blandað sér í Evrópubaráttuna með sigri.

Leikur KR og ÍBV verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3 á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×