Golf

Sveiflukenndur lokahringur hjá Ólafíu í Kanada

Ísak Jasonarson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Vísir/Getty
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lék í dag lokahringinn á CP Women's Open mótinu á LPGA mótaröðinni á einu höggi yfir pari. Hún endaði því mótið á einu höggi yfir pari í heildina og í 64. sæti.

 

Ólafía Þórunn hóf leik á 10. teig á lokahringnum og lék sínar fyrri níu holur á tveimur höggum yfir pari eftir skrautlega byrjun þar sem hún fékk tvo skolla, einn tvöfaldan skolla og tvo fugla.

 

Á seinni níu bætti Ólafía svo við sig tveimur skollum og þremur fuglum og kláraði hringinn á einu höggi yfir pari. 





Ólafía lék með Tiffany Chan og Cristie Kerr í dag en sú síðarnefnda er tvöfaldur risameistari og einn sigursælasti kylfingur mótaraðarinnar undanfarin ár. Kerr lék lokahringinn á 4 höggum undir pari.

 

Þegar fréttin er skrifuð er Ólafía jöfn í 64. sæti en örfáir kylfingar eiga eftir að ljúka leik. Árangur hennar hefur lítil áhrif á stöðu hennar á stigalistanum því hún mun fara niður um eitt sæti á listanum þegar hann verður uppfærður eftir mótið. Ólafía situr því í 138. sæti á stigalistanum en 100 efstu halda þátttökurétti sínum á mótaröðinni í árslok.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira
×