Viðskipti erlent

Apple sagt í vandræðum með heiti á nýjum útgáfum iPhone

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Frá kynningu Apple á iPhone X á síðasta ári.
Frá kynningu Apple á iPhone X á síðasta ári. vísir/Getty
Starfsmenn Apple eru sagðir vera í vandræðum með hvað þrjár nýjar útgáfur af iPhone-símum fyrirtækisins sem kynntar verða í næsta mánuði eigi að heita.

Þetta hefur Bloomberg eftir heimildarmönnum sínum innan Apple en fastlega er gert ráð fyrir að hinar þrjár nýju útgáfur muni allar líkjast iPhone X símanum sem Apple kynnti til leiks á síðasta ári.

Í frétt Bloomberg segir að gert séð ráð fyrir að gerð verði „dýr“ útgáfa af iPhone X með 6,5 tommu skjá sem yrði þá stærsti iPhone-síminn sem Apple hefur framleitt frá því að síminn var fyrst kynntur til leiks árið 2007.

Þá er einnig von á uppfærslu á iPhone X símanum þar sem áhersla verður lögð á hraða sem og betri gæði myndavélarinnar. Athygli vekur að einnig er von á ódýrari útgáfu af iPhone X sem á að koma í stað iPhone 8.

Sagðir hafa farið fram og til baka með heiti á símunum

Í frétt Bloomberg segir að starfsmenn fyrirtækisins hafi lent í nokkrum vandræðum með hvað símarnir eigi að heita og farið fram og til baka og breytt fyrirhuguðum heiti símanna aftur og aftur að því er heimildarmenn Bloomberg herma.

Yfirleitt hefur Apple gefið nýjum símum sem koma út ári eftir útlitsbreytingu stafinn s, líkt og iPhone 6s sem kom á eftir iPhone 6. Fyrirtækið er því sagt vera að íhuga að gefa tveimur dýrari útgáfum símanna stafinn s þannig að þeir bæru heitið iPhone Xs. Þá er Apple einnig sagt íhuga að hætta notkun á heitinu Plus sem kynnt var til leiks árið 2014 fyrir iPhone síma sem eru með stærri skjái.

Bloomberg hefur þó eftir heimildarmönnum sínum innan Apple að ekkert hafi verið ákveðið enn með heitin og því gætu þau enn breyst frá því sem nú er áætlað.

Apple mun kynna til leiks nýjar vörur í næsta mánuði og auk símanna er fastlega gert ráð fyrir að AirPods heyrnartólin verði uppfærð sem og iPad Pro spjaldtölva Apple. Þá er einnig gert ráð fyrir að AirPower, fyrirhugað þráðlaust hleðslutæki, verði kynnt sem og ný útgáfa af Apple Watch, snjallúri Apple.


Tengdar fréttir

Huawei siglir fram úr Apple

Kínverski raftækjarisinn Huawei er orðinn næststærsti snjallsímaframleiðandi heims og hefur þar með tekið fram úr Apple.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×