Formúla 1

Upphitun: Eldheitir Ítalir á Monza

Bragi Þórðarson skrifar
Fagnar Ferrari loks sigri fyrir framan stuðningsmenn sína?
Fagnar Ferrari loks sigri fyrir framan stuðningsmenn sína? Vísir/Getty
Formúlan heldur áfram um helgina og nú er komið að 14. umferðinni þar sem keppt verður á hinni sögufrægu Monza braut á Ítalíu. Ferrari er á heimavelli og vell stutt af ástríðufullum stuðningsmönnum.

Eftir sigur Sebastian Vettel í belgíska kappakstrinum um síðustu helgi er ítalska liðið sem stendur 15 stigum á eftir Mercedes í keppni bílasmiða. Ferrari hefur sýnt það í undanförnum keppnum að liðið er með hraðasta bílinn, það kom sérstaklega í ljós í Belgíu.

Á Monza brautinni, rétt eins og Spa, er aðalatriðið að vera með góða og aflmikla vél. Mercedes hefur verið með aflmestu vélarnar undanfarin ár en nú er orðin breyting á, eins og Ferrari sýndi fyrir viku.

Vettel var þriðji á Monza í fyrravísir/getty
Líkurnar eru því meiri heldur en minni á að rauðu bílarnir munu standa sig um helgina og trylla ítölsku áhorfendurnar, sem kallaðir eru tifosi.

Fyrst var keppt á Monza árið 1921 og er það að sjálfsögðu Ferrari sem á flesta sigra á brautinni, 19 talsins. Liðið hefur þó ekki unnið á heimavelli síðan að Fernando Alonso vann á brautinni árið 2010.

Æfingar, tímatökur og kappaksturinn verður allt í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport um helgina og byrjar kappaksturinn klukkan 12:50 á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×