Golf

DeChambeau í hóp goðsagnakylfinga

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
DeChambeau komst í föngulegan hóp goðsagnakylfinga með sigri sínum á sunnudag.
DeChambeau komst í föngulegan hóp goðsagnakylfinga með sigri sínum á sunnudag. Getty
Með sigri sínum á The Northern Trust golfmótinu á sunnudag, bættist Bryson DeChambeau við í föngulegan hóp goðsagnakylfinga. Aðrir kylfingar í hópnum eru þeir Jack Nicklaus, Tiger Woods og Phil Mickelson.

The Northern Trust mótið er hluti af PGA-mótaröðinni en DeChambeau vann mótið nokkuð örugglega en næsti maður var fjórum höggum á eftir DeChambeau.

Með sigrinum varð Bandaríkjamaðurinn ungi aðeins fjórði maðurinn í sögunni til þess vinna Háskólameistaramótið í golfi, bandaríska áhugamanna meistaramótið og að minnsta kosti þrjú mót á PGA-mótaröðinni.

Hinir kylfingarnir til að afreka hið sama eru goðsagnirnar Jack Nicklaus, Tiger Woods og Phil Mickelson, einhverjir bestu kylfingar sögunnar.

Gullbjörninn, Jack Nicklaus er einn sigursælasti kylfingur sögunnar. Hann á flesta stórmótstitla í sögunni, eða 18 titla í heildina og er í 3. sæti yfir flesta sigra á PGA-mótaröðinni.

Næstur á eftir honum er einmitt Tiger Woods með 14 titla á bakin og þá er Woods í 2. sæti yfir flestu sigra á PGA-mótaröðinni ásamt því að vera einn þekktasti íþróttamaður samtímans.

Phil Mickelson er í 9. sæti yfir flestu sigra á PGA-mótaröðinni og þá hefur hann unnið fimm stórmót.

Dechambeau er því kominn í ansi föngulegan hóp kylfinga þrátt fyrir ungan aldur og ljóst er að framtíðin er björt hjá honum en hann verður 25 ára um miðjan september.

Með sigrinum á sunnudag opnaði DeChambeau möguleikann á því að vera valinn í bandaríska liðið sem mætir því evrópska um Ryder-bikarinn í lok september. Fá sæti eru eftir í bandaríska liðinu og er DeChambeau að keppa við áðurnefnda Tiger Woods og Phil Mickelson, svo einhverjir séu nefndir um þessi fáu sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×