Viðskipti innlent

Sýn tapaði fjórum milljónum

Samúel Karl Ólason skrifar
Sýn er móðurfélag Vodafone.
Sýn er móðurfélag Vodafone. Vísir/Hanna
Sýn tapaði fjórum milljónum króna á öðrum fjórðungi ársins og er það lækkun um 102 prósent miðað við sama fjórðung í fyrra. Hagnaður á fyrri helmingi ársins var 52 milljónir króna og er það lækkun um 88 prósent á milli ára. Þetta kemur fram í árfsjórðungsuppgjöri Sýnar sem samþykkt var í dag.

Þar kemur fram að tekjur jukust um 61 prósent en kostnaður hafi verið hár og fjárfestingar sömuleiðis vegna samþættingar eftir kaup tiltekinna hluta 365 miðla.

Reiknað er með aukinni samlegð og sterkari rekstur á seinni helmingi ársins.

„Annar fjórðungur var mjög stór samþættingafjórðungur þar sem mikilvægum áföngum var náð eins og til dæmis tilfærsla allra farsímaviðskiptavina 365 yfir á kerfi Sýnar með útskiptingu sim korta án áfalla, sameiningu fjölmargra deilda og þjónustukerfa og flutningi útvarps og dagskrárgerðar úr Skaftahlíð svo fátt eitt sé nefnt. 70% af starfsmönnum keyptra eininga starfa nú á Suðurlandsbraut. Þetta þýðir að mikilvæg samrunaverkefni eru í höfn og því er búist við að kostnaður taki frá þriðja fjórðungi að lækka hratt,“ er haft eftir Stefáni Sigurðssyni, forstjóra, í ársreikningnum.

„Við búumst þar af leiðandi við mun sterkari fjórðungum seinni hluta árs þar sem bæði kostnaður lækkar auk þess sem tekjur fjórðunga seinni hluta árs eru sterkar vegna árstíðasveiflu, fjarskiptin sterk á þriðja fjórðungi og fjölmiðlunin á fjórða fjórðungi.“

Í tilkynningu segir að EBITDA horfur fyrir árið séu á bilinu 4.000 til 4.400 milljónir króna af reglulegri starfsemi. Núverandi áætlanir félagsins séu við neðri mörk þess bils. Þá námu fjárfestingahreyfingar samstæðunnar 854 milljónum króna á ársfjórðunginum og er það 59 prósent á milli ára.



Vísir er í eigu Sýnar hf.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×