Viðskipti erlent

Stefna Tesla og Elon Musk vegna markaðsmisnotkunar

Kjartan Kjartansson skrifar
Musk hefur oft agnúast út í skortsölumenn. Tveir þeirra hafa nú stefnt honum fyrir að reyna að hafa áhrif á hlutabréfaverð með óeðlilegum hætti.
Musk hefur oft agnúast út í skortsölumenn. Tveir þeirra hafa nú stefnt honum fyrir að reyna að hafa áhrif á hlutabréfaverð með óeðlilegum hætti. Vísir/Getty
Skortsölumenn hafa stefnt rafbílaframleiðandanum Tesla og Elon Musk, forstjóra fyrirtækisins, fyrir það sem þeir telja vera markaðsmisnotkun og svik. Þeir vísa meðal annars til tísts Musk þar sem hann ýjaði að því að hann gæti tekið Tesla af markaði.

Musk tísti um að hann hefði tryggt fjármögnun fyrir því að taka Tesla af markaði og greiða 72 milljarða dollara fyrir hluti í fyrirtækinu í vikunni. Þessa yfirlýsingu Musk telja stefnendurnir hafa verið misvísandi og hluti af tilraun til að rústa skortsölumönnum, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

Musk hafi í reynd blásið upp hlutabréfaverð í fyrirtækinu og brotið lög um verðbréf. Tesla hafi tekið þátt í því með því að leiðrétta ekki yfirlýsingu forstjórans. Verð á hlutum í Tesla hækkaði um 13% á milli daga eftir tíst Musk. Þetta hafi kostað skortsölumennina hundruð milljóna dollara.

Skortsölumenn fá lánaða hluti í fyrirtækjum sem þeir telja yfirverðlagða og selja með það fyrir augum að kaupa hlutina aftur þegar þeir lækka í verði til að hagnast á viðskiptunum. Þeir hafa löngum verið þyrnir í augum Musk sem hefur gagnrýnt þá opinberlega.


Tengdar fréttir

Musk íhugar að taka Tesla af markaði

Elon Musk, stofnandi Tesla, tilkynnti á Twitter í dag að hann væri að íhuga að taka fyrirtækið af hlutabréfamarkaði og myndi það kosta um 72 milljarða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×