Lífið

Andrea Röfn og Arnór Ingvi eiga von á barni

Bergþór Másson skrifar
Andrea Röfn og Arnór Ingvi glöð með að fjölga mannkyninu.
Andrea Röfn og Arnór Ingvi glöð með að fjölga mannkyninu. Andrea Röfn / Instagram
Fyrirsætan Andrea Röfn Jónasdóttir og fótboltamaðurinn Arnór Ingvi Traustason tilkynntu í dag að þau eiga von á barni.

Parið býr saman í Malmö í Svíþjóð þar sem Arnór spilar fótbolta með liðinu Malmö FF.

Arnór hefur verið í íslenska landsliðshópnum síðastliðin 3 ár og spilað bæði á EM og HM.

Andrea Röfn er menntaður viðskiptafræðingur og starfar sem fyrirsæta og bloggari.

Á Instagram síðu Andreu tilkynna þau bumbubúann og skrifar Andrea að „einn lítill vatnsberi mætir til leiks í febrúar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×