Enski boltinn

Pochettino: Kane mun skora

Dagur Lárusson skrifar
Harry Kane.
Harry Kane. vísir/getty
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, segir að hann hafi fulla trú á því að Harry Kane endi markaþurrð sína í ágúst.

 

Harry Kane spilaði allan leikinn í 2-1 sigri Tottenham á Newcastle um helgina en hann náði þó ekki að skora og hefur hann því ennþá ekki skorað fyrir Tottenham í ágúst mánuði.

 

 „Fyrir mér þá er hann í sínu besta formi sama hvort hann skorar eða ekki. Ég hef engar áhyggjur af því að hann sé ekki í góðu formi. Hann vann mikið fyrir liðið um helgina og ég er viss um það að hann muni skora í næsta leik.“

 

„En hann getur þó ekki skorað þrjú mörk í hverjum einasta leik.“

 

Harry Kane og félagar taka á móti Fulham í ensku úrvalsdeildinni næstu helgi en þá fær Kane tækifæri til þess að binda enda á þessu ótrúlega en jafnframt skemmtilegu markaþurrð sína.

 


Tengdar fréttir

Dele Alli tryggði Tottenham sigur

Tottenham Hotspur fór með sigur af hólmi gegn Newcastle í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag en það var Dele Alli sem skoraði sigurmarkið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×