Viðskipti innlent

Toyota fer í hart vegna Hybrid-bíla auglýsinga

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Toyota segir fullyrðinguna standa og kærir niðurstöðuna.
Toyota segir fullyrðinguna standa og kærir niðurstöðuna. Vísir/Getty
Toyota á Íslandi hefur kært til áfrýjunarnefndar í neytendamálum þá ákvörðun Neytendastofu um að banna fyrirtækinu að fullyrða í auglýsingum sínum að Hybrid-bílar framleiðandans séu „50% rafdrifnir“ án þess að frekar sé útskýrt hvað við sé átt. Hybrid-bílar, oft kallaðir tvinnbílar, eru knúnir ýmist af rafmagni eða jarðefnaeldsneyti.

Ekki er hægt að hlaða bílana heldur er orka sem myndast frá mótornum notuð til að hlaða rafgeymana. Bíllinn skiptir síðan milli raforkunnar og eldsneytisins. Í Fréttablaðinu í gær var sagt frá því að Toyota hefði að undanförnu birt lítið breyttar auglýsingar fyrir Hybrid-bíla en í þeim var fullyrt að bílarnir væru fimmtíu prósent rafdrifnir. Áður hafði Neytendastofa bannað áþekkar auglýsingar þar sem þær þóttu villandi. Fullyrðinguna mætti skilja með tvennum hætti og í raun útilokað að hinn almenni neytandi myndi átta sig á því að hún ætti eingöngu við aksturstíma.

Sjá einnig: Lítið breytt útgáfa af villandi auglýsingu

Fullyrðingin „50% rafdrifinn“ var úrskurðuð villandi af Neytendastofu í júní.Skjáskot
Í nýju auglýsingunum var hin umdeilda fullyrðing stjörnumerkt en í neðanmálsgrein á auglýsingunni útskýrt frekar hvað við væri átt. „Þann 9. febrúar síðastliðinn fór Neytendastofa fram á að Toyota á Íslandi færði sönnur á fullyrðingar um að Hybrid-bifreiðar framleiðandans væru 50% rafdrifnar. Toyota á Íslandi afhenti í kjölfarið Neytendastofu niðurstöður tveggja óháðra rannsókna sem sanna þá fullyrðingu. Neytendastofa gerði ekki athugasemdir við þær rannsóknir. 

Neytendastofa óskaði hins vegar eftir því þann 21. júní að Toyota á Íslandi tæki fram í auglýsingum sínum að framsetningin vísaði til aksturstíma bifreiðanna og að um væri að ræða blandaðan akstur,“ segir í orðsendingu frá Páli Þorsteinssyni, almannatengli Toyota á Íslandi, til Fréttablaðsins. Nýju auglýsingarnar hafa verið birtar undanfarinn mánuð.

Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu, sagði í Fréttablaðinu í gær að enn sem komið er hefði stjórnvaldinu ekki borist ábending um nýrri gerðina. Í skeyti Páls segir að fyrirtækið hafi ákveðið að kæra ákvörðun Neytendastofu til áfrýjunarnefndarinnar. Ákvörðunin feli í raun í sér að ríkari kröfur séu gerðar til auglýsinga fyrir Hybrid-bíla heldur en til auglýsinga sem varða bensín-, dísil- eða rafmagnsbíla. „Eftir stendur sú staðreynd óhögguð að Hybrid-bílar frá Toyota aka að meðaltali yfir fimmtíu prósent af tímanum án þess að notast við bensínvélina,“ segir í svari Páls.


Tengdar fréttir

Lítið breytt útgáfa af villandi auglýsingu

Toyota var bannað að fullyrða að Hybrid-bílar framleiðandans væru fimmtíu prósent rafdrifnir. Nýjar auglýsingar eru svipaðar þeim gömlu að neðanmálsgrein viðbættri. Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna vill skjót viðbrögð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×