Körfubolti

Gömul NBA-stjarna rekin fyrir að gagnrýna Kawhi Leonard

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bruce Bowen.
Bruce Bowen. Vísir/Getty
Bruce Bowen er gömul hetja úr NBA-meistaraliði San Antonio Spurs sem hefur verið að lýsa leikjum Los Angeles Clippers liðsins. En ekki lengur.

Los Angeles Clippers sá til þess að Bruce Bowen var sagt upp störfum og er ástæðan er gagnrýni hans á Kawhi Leonard, fyrrum leikmann San Antonio Spurs.

Aðalástæðan fyrir viðkvæmni Clippers er að félagið ætlar sér að ná í Kawhi Leonard næsta sumar.

Kawhi Leonard fór til Toronto Raptors frá Spurs og klárar þar lokaár samningsins. Hann er síðan með lausan samning næsta sumar og þá ætlar Los Angeles Clippers að reyna að tæla hann til sín.

Bruce Bowen var mjög ósáttur við það að Kawhi Leonard vildi fara frá San Antonio Spurs og gerði lítið úr afsökunum leikmannsins sem hann kallaði væl og vitleysu.







Bowen vann í raun fyrir Fox Sports West en ekki fyrir Los Angeles Clippers en Clippers pressaði á það að hann yrði rekinn sem varð svo raunin. Bandarísku fjölmiðlamennirnir voru fljótir að benda á það.

Það eru mörg félög sem munu keppa um undirskrift Kawhi Leonard næsta sumar og nágrannar Clippers í Los Angeles Lakers eru eitt af þeim liðum.

Kawhi Leonard er frábær leikmaður, einstakur varnarmaður sem var orðinn aðalstjarnan í San Antonio Spurs. Hann meiddist hins vegar illa í úrslitakeppninni 2017 og spilaði lítið á síðasta tímabili. Allt fór síðan upp í háaloft á milli hans og Spurs. Bowen blandaði sér í umræðuna en það kostaði hann líka starfið.





Bruce Bowen var frábær varnarmaður og þriggja stiga skytta hjá San Antonio Spurs og var í þremur meistaraliðum Spurs árin 2003, 2005 og 2007.

Bowen var meðal annars átta sinnum kosinn í fyrsta eða annað varnarlið ársins og treyja hans númer 12 hangir í loftinu í San Antonio Spurs höllinni. Jú, hann er Spurs-maður í gegn.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×