Innlent

Rannsaka hvernig eldurinn norðan við Flúðir kviknaði

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi í gærkvöldi.
Frá vettvangi í gærkvöldi. Brunavarnir Árnessýslu
Eldur kom upp í um það bil 200 fermetra pökkunarhúsi við garðyrkjustöðina Reykjaflöt norðan við Flúðir rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi.

Þegar að slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu frá starfseiningunni á Flúðum bar að garði var umtalsverður eldur í húsinu. Greiðlega gekk að ná tökum á eldinum og var hann að mestu slökktur um 20 mínútum eftir að slökkviliðsmenn bar að garði.

Vindátt var hagstæð við slökkvistarfið þannig að aðrar byggingar voru ekki í hættu.

Alls komu um 30 slökkviliðsmenn Brunavarna Árnessýslu að slökkvistarfinu frá starfsstöðvum á Flúðum, Reykholti, Laugarvatni og Selfossi, sem lauk um klukkan 00:30 að því er segir í tilkynningu frá Brunavörnum Árnessýslu.

Eldsupptök eru ókunn en Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins.

 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×