Innlent

Ásthildur Lóa vill leiða Neytendasamtökin

Atli Ísleifsson skrifar
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, kennari og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, kennari og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna. Ásthildur Lóa
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, kennari og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, hefur tilkynnt að hún bjóði sig fram í embætti formanns Neytendasamtakanna.

Áður hafa fjórir tilkynnt um framboð, þeir Breki Karlsson forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi, Guðjón Sigurbjartsson viðskiptafræðingur, Guðmundur Hörður Guðmundsson, fyrrverandi formaður Landverndar, og Jakob S. Jónsson leiðsögumaður og leikstjóri.

Í tilkynningu frá Ásthildi Lóu segir hún að þörfin á sterkum samtökum neytenda hafi sjaldan eða aldrei verið brýnni en núna. „Allur almenningur hefur með einum eða öðrum hætti fundið fyrir aukinni misskiptingu í þjóðfélaginu á eigin skinni. Við höfum horft á fé flytjast á fárra hendur og fundið fyrir vanmætti okkar gagnvart hækkunum á eldsneyti, tryggingum, vöxtum, verðbótum, leigu, þjónustugjöldum, lyfjakostnaði eða komugjöldum á spítala, svo fátt eitt sé nefnt.

Í ákvörðunum stjórnvalda er tekið tillit til hagsmuna stórra fyrirtækja og fjársterkra aðila sem jafnvel eiga sína fulltrúa í ráðum og nefndum, oftar en ekki á kostnað hagsmuna neytenda.

Það er mál að linni! Við þurfum öflug Neytendasamtök sem eru óhrædd við að „taka slagi“ til að verja hagsmuni almennings.

Ég tel að barátta mín fyrir því að lögboðin réttindi neytenda á fjármálamarkaði séu virt, sýni það og sanni að ég er málefnaleg og rökföst auk þess að vera óhrædd í baráttu við sterkustu öfl þjóðfélagsins.

Oft var þörf en nú er nauðsyn, þess vegna býð ég mig fram,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Guðjón sækist eftir formennsku í Neytendasamtökunum

Viðskiptafræðingurinn Guðjón Sigurbjartsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til formennsku í Neytendasamtökunum. Nýr formaður verður kjörinn á þingi samtakanna 27. október næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×