Erlent

Ætla að berjast gegn viðtali við Mueller

Samúel Karl Ólason skrifar
Rudy Giuliani, lögmaður Trump.
Rudy Giuliani, lögmaður Trump. Vísir/AP
Lögmannateymi Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, ætla sér að berjast af öllum krafti gegn því að Trump verði þvingaður til að ræða við rannsakendur Robert Mueller. Jafnvel þó málið þurfi að fara fyrir Hæstarétt Bandaríkjanna. Þeir eru enn að bíða eftir svari Mueller við bréfi þeirra um að Trump þyrfti ekki að svara spurningum um hvort hann hefði reynt að hindra framgang réttvísinnar frá því í síðustu viku.

Í millitíðinni eru lögmenn forsetans að undirbúa varnir sínar gegn stefnu. Þetta sagði Rudy Giuliani, einn lögmanna Trump, í viðtali í gær. Stefni Mueller Trump til að fá hann í viðtal myndu lögmenn Trump berjast gegn því.

„Við myndum kremja stefnuna,“ sagði Giuliani í gær. Hann sagði enn fremur að það væri í rauninni búið að undirbúa vörnina gegn stefnu.



Barátta um slíka stefnu yrði án fordæmis. Bill Clinton var stefnt vegna rannsóknarinnar varðandi framhjáhald hans og Monicu Lewinski en stefnan var dregin til baka þegar hann samþykkti að bera vitni. Verði Trump stefnt gæti baráttan um gildi stefnunnar tekið marga mánuði.

Á sama tíma kalla lögmenn Trump eftir því að Mueller bindi enda á rannsóknina.

Hafa reynt að ræða við forsetann í marga mánuði

Mueller var gert að rannsaka afskipti yfirvalda Rússlands af forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016, mögulegt samstarf framboðs Trump með Rússum, hvort Trump hafi reynt að hindra framgang réttvísinnar og aðra glæpi sem uppgötvast við rannsóknina. Hann var skipaður í embætti sérstaks saksóknara eftir að Trump viðurkenndi í sjónvarpsviðtali að hafa rekið James Comey, fyrrverandi yfirmann Alríkislögreglu Bandaríkjanna, vegna Rússarannsóknarinnar svokölluðu.

Trump segir rannsóknina vera nornaveiðar.

Mueller og rannsakendur hans hafa reynt að ræða við Trump í marga mánuði en án árangurs. Í síðustu viku sendu lögmenn forsetans bréf til Mueller þar sem þeir sögðu það „óviðeigandi lagalega séð“ að yfirheyra forsetann.



Sjálfur hefur Trump ítrekað sagst vilja ræða við Mueller en lögmenn hans hafa komið í veg fyrir það. Fjölmiðlar ytra segja Trump vissan í sinni sök um að hann gæti sannfært Mueller um að engin brot hefðu átt sér stað og fengið hann til að láta af rannsókninni.

Lögmenn forsetans óttast að rannsakendur Mueller gætu leitt Trump í gildru og óttast að hann myndi ljúga að þeim, sem er í sjálfu sér glæpur samkvæmt lögum Bandaríkjanna.


Tengdar fréttir

12 Rússar ákærðir vegna Mueller rannsóknarinnar

Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna tilkynnti í dag um að 12 rússneskir ríkisborgarar hefðu verið ákærðir grunaðir um að hafa meðal annars brotist inn á tölvukerfi demókrataflokksins.

Umdeildur starfsmaður FBI rekinn vegna skilaboða um Trump

Alríkislögregla Bandaríkjanna, FBI, hefur sagt Peter Strzok, fyrrverandi aðstoðaryfirmanni gagnnjósna FBI, upp vegna einkaskilaboða hans og annars starfsmanns FBI um Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.

Ríkisbubbinn með heiminn á móti sér

Donald Trump fæddist inn í mikið ríkidæmi og er einn af valdamestu mönnum heims, ef ekki sá valdamesti. Þrátt fyrir það dregur hann ítrekað upp mynd af sjálfum sér sem fórnarlambi og heimurinn sé allur á móti honum.

Trump segir að Sessions ætti að stöðva Mueller

Jeff Sessions sagði sig frá Rússarannsókninni á sínum tíma, eftir að í ljós kom að hann hafði sagt þingmönnum ósatt um samskipti sín og Sergei Kislyak, þáverandi sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum.

Mueller varar við áframhaldandi afskiptum Rússa

Saksóknarar á vegum sérstaka rannsakandans vilja að dómari í máli gegn rússneskri tröllaverksmiðju haldi leynd yfir sönnunargögnum vegna áframhaldandi afskipta Rússa af kosningum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×