Innlent

Barnaverndarnefnd látin vita af ofsaakstri ungs ökumanns

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá Reykjanesbraut.
Frá Reykjanesbraut. Vísir/Vilhelm
Ökumaður sem er undir lögaldri var tekinn á 151 kílómetra hraða á klukkustund á Reykjanesbraut í vikunni. Lögreglan á Suðurnesjum gerði forráðamönnum hans og barnaverndarnefnd viðvart um hraðaksturinn.

Alls hefur lögreglan á Suðurnesjum kært á annan tug ökumanna fyrir of hraðan akstur í þessari viku. Unga ökumannsins bíður 230.000 króna sekt, svipting ökuleyfis í tvo mánuði og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir einnig frá ökumanni sem ók á ofsahraða um Nesveg í vikunni. Mildi þykir að ekki hafi farið verr en raun bar vitni þegar ökumaður sem mætti honum missti stjórn á bíl sínum og lenti utan vegar. Bíllinn var óökufær en ökumaðurinn og farþegi sluppu ómeiddir.

Á Reykjanesbraut var bifreið stöðvuð þar sem lögreglumenn sem voru þar við eftirlit töldu að of margir farþegar væru um borð.

Í ljós kom að umframfarþegarnir voru tvö börn á aldrinum sex og ellefu ára og hvorugt þeirra í bílbeltum. Fullorðnu farþegarnir voru allir með öryggisbelti spennt. Ökumaðurinn var sektaður um 45 þúsund krónur og athæfið að auki tilkynnt til barnaverndarnefndar.

Á Njarðarbraut var bifreið ekið aftan á aðra. Kenndi annar ökumannana sér meins í baki eftir óhappið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×