Lífið

Hleypt úr byssu á tökustað fyrir myndband 50 Cent

Stefán Árni Pálsson skrifar
50 Cent var á svæðinu.
50 Cent var á svæðinu.
Mikil hætta skapaðist á tökustað fyrir nýtt tónlistarmyndband með Tekashi69 og 50 Cent í Brooklyn í gær þegar einstaklingur hleypti úr byssu nálægt tökustaðnum. TMZ greinir frá.

Vitni segjast hafa séð einstakling aka á hvítum Porsche fram hjá tökustaðnum og mun sá aðili hafa skotið ellefu sinnum úr byssu á svæðinu en enginn varð fyrir skotunum.

Bæði Tekashi69 og 50 Cent voru á svæðinu en svo virðist sem byssumaðurinn hafi ekki reynt að skjóta rapparana.

Lögreglan í New York skoðar nú eftirlitsmyndavélar á svæðinu til að finna manninn en bifreiðin var með númeraplötu sem skráð er í New Jersey.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×