Innlent

Veðurspáin, meðaltími hlaupara og aðrar áhugaverðar upplýsingar fyrir Reykjavíkurmaraþonið

Birgir Olgeirsson skrifar
Veðrið verður afar gott á hlaupadegi gangi spáin eftir.
Veðrið verður afar gott á hlaupadegi gangi spáin eftir. Vísir/Daníel Rúnarsson
Það verður einmuna blíða þegar um 15 þúsund manns taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardag. Spár gera ráð fyrir að hæðahryggur ráði ríkjum yfir vestanverðu landinu sem þýðir að útlit er fyrir þurrt og sólríkt veður.

Veðurstofa Íslands segir horfur á vindi úr norðvestri, kringum sex metra á sekúndu sem kallað er stinningsgola á gamla vindstigakvarðanum.

Hafáttin þýðir að hiti á opinbera mæla í skugga nær varla nema 12 til 13 stigum, en í skjóli á sólríkum stað verður hlýrra. Um kvöldið er gert ráð fyrir að vind lægi og hitatölurnar síga niðurávið þegar sólar nýtur ekki lengur við. Það þýðir að framan af degi er þörf á sólarvörn en um kvöldið ætti að smeygja sér í hlýja peysu.

Keppendur í maraþoni og hálfmaraþoni verða ræstir út klukkan 08:40 á laugardag. Keppendur í maraþoni eru um 1.550 manns en af þeim eru þrettán hundruð erlendir þátttakendur. Tæplega 3.000 eru skráðir í hálft maraþon.

Klukkan 09:35 eru þátttakendur í tíu kílómetra hlaupi ræstir út en tæplega sex þúsund manns eru skráðir til leiks þar.

Um 15.000 manns taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardag.Vísir/Daníel Rúnarsson
Einar Gunnar Guðmundsson hefur tekið saman tölfræði úr Reykjavíkurmaraþoninu og birt á vef sínum.

Samkvæmt þeim gögnum sem Einar hefur tekið saman var meðaltími hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrra eftirfarandi:

10 kílómetra hlaup

Karlar: 59 mínútur og 41 sekúnda

Konur: Ein klukkustund og tíu mínútur

Hálft maraþon

Karlar: Ein klukkustund og 58 mínútur

Konur: Tvær klukkustundir og 13 mínútur

Maraþon

Karlar: Fjórar klukkustundir og tíu mínútur

Konur: Fjórar klukkustundir og 30 mínútur

Þeir sem eru skráðir þurfa að sækja hlaupagögn í Laugardalshöll. Hægt er að sækja gögnin til klukkan 20 í kvöld en á morgun er hægt að nálgast gögnin á milli klukkan 14 og 19.

Samkvæmt reglum hlaupsins er skulu þátttakendur kynna sér hlaupaleiðir og hlaupa eftir þeirri braut sem skilgreind hefur verið af hlaupahaldara.

Hér má kynna sér hlaupaleiðirnar.

Í Reykjavíkurmaraþoninu býðst hlaupurum í tíu kílómetra hlaupi, hálfmaraþoni og maraþoni aðstoð við að ná hraðamarkmiðum sínum. Hraðastjórar munu hlaupa áður nefndar vegalengdir á ákveðnum jöfnum hraða. Þeir verða í merktum vestum og með blöðrur til að hlauparar geti fylgt þeim. Hraðastjórarnir, sem eru allir vanir hlauparar, munu hlaupa á eftirtöldum tímum:

10 km hlaup

  • 45 mínútur Gísli Páll Reynisson
  • 50 mínútur Friðleifur Friðleifsson
  • 55 mínútur Ásta Laufey Aðalsteins
  • 60 mínútur Sigríður Gísladóttir og Árni Gústafsson
  • 65 mínútur Jóhanna Eiríksdóttir og Karl Gíslason
  • 70 mínútur Pétur Valdimarsson
Hálfmaraþon

  • 1 klst og 40 mínútur Birna Varðardóttir Gunnarsson og Inga Dís Karlsdóttir
  • 1 klst og 45 mínútur Melkorka Árný Kvaran og Þorsteinn Tryggvi Másson
  • 1 klst og 50 mínútur Friðrik Ármann Guðmundsson og Svanhildur Þengilsdóttir
  • 1 klst og 55 mínútur Daði Jónsson og Kristján Hrafn Guðmundsson
  • 2 klukkustundir Jóhanna Arnórsdóttir og Bryndís Ernstdóttir
Maraþon

  • 4 klst Dagur Egonsson og Ólafur Briem
Eru þátttakendur hvattir til að kynna sér hraðahólfi vel við upphaf hlaupsins og velja sér hólf sem er á þeim tíma sem þeir ætla sér að hlaupa á. Hægt er að kynna sér hraðahólfin hér. 

Á hlaupadeginum sjálfum er þátttakendum ráðlagt að fá sér morgunmat sem þeir vita að fer vel í þá nokkru fyrir keppni og drekka nóg ef hlaupa á lengri vegalengdir. Þá er keppendum ráðlagt frá því að reyna einhverja nýja hluti heldur halda sig við sína rútínu. Hlaupurum er ráðlagt að fara fremur hægt af stað til að koma í veg fyrir að þeir springi á leiðinni á og gefist upp. Mikill æsingur getur verið við rásmarkið og því mikilvægt fyrir marga að halda ró til að fara ekki of geyst af stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×