Enski boltinn

Yfirgefur Arsenal fyrir Juventus

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mavididi í leik með varaliði Arsenal.
Mavididi í leik með varaliði Arsenal. vísir/getty
Juventus er nálægt því að ganga frá kaupum á framherjanum Stephy Mavidid en hann kemur til félagsins frá Arsenal. Sky greinir frá.

Þessi tvítugi framherji gengst undir læknisskoðun á næstu 24 tímum en hann flaug til Ítalíu í gær þar sem hann fer í læknisskoðun hjá meisturunum.

Mavididi kom aldrei við sögu hjá aðalliði Arsenal en hann hefur undanfarin ár leikið á láni hjá Charlton og Preston í neðri deildum enska boltans.

Hann hefur verið í herbúðum Arsenal síðan hann var ungur og skrifaði undir atvinnumannasamning í júli 2015. Hann á leiki að baki fyrir yngri lið Englands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×