Innlent

Mánaðarlaunin tvær milljónir

Baldur Guðmundsson skrifar
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ.
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ.
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, hefur skrifað undir nýjan ráðningarsamning. Mánaðarlaun hans verða tæpar tvær milljónir króna.

Ný bæjarstjórn hefur gengið frá ráðningu Haraldar, sem hefur verið bæjarstjóri síðan haustið 2007. Í ráðningarsamningi segir að launin skuli vera samkvæmt úrskurði kjara­ráðs um laun ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis. Hann fær greiddar 50 einingar af yfirvinnu á mánuði og fær greitt fyrir 1.200 kílómetra akstur á eigin bíl á mánuði.

Föst laun Haraldar, miðað við launatöflu kjararáðs, nema 1.339.043 krónum á mánuði. Fyrir 50 yfirvinnustundir fær Haraldur 478.650 en vegna aksturs fær hann 129.800 krónur á mánuði. Samtals nema launagreiðslurnar 1.947.493 krónum á mánuði.




Tengdar fréttir

Mánaðarlaun ríkisforstjóra hækkuðu um 1,2 milljónir

Laun forstjóra Landsvirkjunar hækkuðu miklu meira í fyrra en áður hafði verið haldið fram. Ríkisforstjórar hækkuðu margir umtalsvert í launum í júlí í fyrra þegar stjórnir fyrirtækjanna tóku við ákvörðunarvaldi launa þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×