Innlent

Reiðhjólaþjófur fannst ekki þrátt fyrir leit

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þá var einnig tilkynnt um fólk í annarlegu ástandi í Breiðholti á áttunda tímanum í morgun.
Þá var einnig tilkynnt um fólk í annarlegu ástandi í Breiðholti á áttunda tímanum í morgun. Vísir/Vilhelm
Á áttunda tímanum í morgun barst lögreglu tilkynning um karlmann í hverfi 105 þar sem hann reyndi að stela reiðhjólum. Maðurinn lét sig hverfa af vettvangi og fannst ekki þrátt fyrir leit, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Önnur verkefni lögreglu í morgun sneru annars vegar að innbroti og þjófnað úr bifreið í miðborginni, sem ekki fengust frekari upplýsingar um, og hins vegar að fólki í annarlegu ástandi fyrir utan fjölbýlishús í Breiðholti.

Í síðarnefnda málinu fór lögregla á vettvang og ræddi við parið, sem sagðist vera á heimleið. Fólkið hélt sína leið enda ekki ástæða til frekari aðgerða af hálfu lögreglu, að því er segir í tilkynningu. Bæði málin voru tilkynnt til lögreglu á áttunda tímanum í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×