Innlent

Rólyndi annarrar andarnefjunnar gæti hafa orðið henni til lífs

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Sjávarlíffræðingur segir að rólyndi andarnefjunnar sem komst lífs af í Engey í gær gæti hafa orðið henni til lífs. Hin andarnefjan drapst en talið er að innvortis blæðingar hafi dregið hana til dauða.

Tilkynnt var um andarnefjurnar tvær, sem sátu fastar í fjörunni í Engey, síðdegis í gær  en fólk varð fyrst vart við þær um klukkan 13. Fjöldi fólks tók þátt í björgunaraðgerðum sem fjallað var ítarlega um á Vísi.

Virtist á tímabili ekki með lífsmarki

Andarnefjurnar voru í slæmu ástandi þegar Edda Elísabet Magnúsdóttir sjávarlíffræðingur kom á staðinn í gær. Þær voru illa rispaðar, áttu erfitt með andardrátt og mikið blæddi úr þeim.

„Önnur þeirra var í verra ástandi, virtist vera að upplifa meira „trauma“ og var í meira sjokki. Sá hvalur hafði það ekki af. Hinn var mun rólegri og virtist á tímabili ekki endilega með lífsmarki en hann vissulega hélt alltaf áfram að anda,“ segir Edda.

 

Edda Elísabet Magnúsdóttir, sjávarlíffræðingur, í Engey í gær.Mynd/Skjáskot
Hvalirnir voru á landi í nokkra klukkutíma og segir Edda að lífslíkur þeirra miðað við þann tíma hafi verið slæmar.

„Líffærin fara hægt og rólega að gefa undan eigin þunga og skemmast, og innvortis blæðingar eru mjög líklegar við þessar aðstæður. Það er mjög sennilegt að það hafi verið það sem grandaði hinu dýrinu,“ segir Edda en útilokar þó ekki að hjartastopp hafi dregið dýrið til dauða.

„En einhvern veginn virðist hin hafa sloppið, hún barðist minna um, hún hélt ró sinni, hvort sem það hafi verið viljandi eða ekki, en það gæti hafa verið henni til lífs.“

Naut aðstoðar manna á bátum og brettum

Andarnefjan sem komst lífs af var mjög máttfarin þegar náðist að koma henni aftur út í sjó. Hvalurinn var nokkuð vankaður eftir átökin á landi og átti erfitt með að halda jafnvægi á sundi.

Andarnefjan náði sér á strik eftir að hún komst aftur út í sjó og naut þar aðstoðar björgunarmanna.Mynd/Skjáskot
Edda segir þó að andarnefjan hafi fljótlega náð að rétta úr sér, með hjálp björgunarsveitarmanna á bátum og brettum. Þá virtist hún hafa komið sér út úr grynningunum í dag.

„Það er mjög algengt að djúpsjávarhvalir villist og verði áttavilltir við þessar aðstæður þar sem þeir ná ekki að nýta sína venjulegu tækni, bergmálsmiðun, til þess að rata um við svona aðstæður,“

Gætum átt von á fleiri tilfellum

Að sögn Eddu halda andarnefjur sig aðallega við Jan Mayen og Grænland en þær koma oft til Íslands á sumrin. Hér séu þær að elta smokkfisk sem sækir landið heim á þessum tíma.

„Ef þær fara að gera það í meiri mæli þá getum við átt von á því að það verði fleiri tilfelli eins og þessi. Mögulega bendir þetta til þess að fleiri dýr hafi komið hingað inn,“ segir Edda.

Samkvæmt frétt RÚV verður dauða andarnefjan krufin á vettvangi og hafa Hafrannsóknastofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands umsjón með því. Eddu tekur sjálf þátt í krufningunni. Að lokinni krufningu verður hræinu sökkt með aðstoð Landhelgisgæslunnar.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Velta þurfti andarnefjunni til að opna fyrir loftgatið á henni.Mynd/Skjáskot

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×