Enski boltinn

Martial fyrstur í United til að fá sekt frá Mourinho

Einar Sigurvinsson skrifar
Anthony Martial hefur lítið fengið að spila keppnisleiki fyrir United.
Anthony Martial hefur lítið fengið að spila keppnisleiki fyrir United. vísir/getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Anthony Martial sé fyrsti leikmaðurinn sem hann hafi sektað síðan hann tók við liðinu. Martial var sektaður fyrir að skila sér ekki aftur til Bandaríkjanna þar sem liðið var í æfingaferð eftir að hafa verið viðstaddur fæðingu sonar síns.

„Ég hef verið hérna í tvö ár og nokkra mánuði og eini leikmaðurinn sem ég hef sektað er Anthony Martial, svo það er ekki auðvelt að fá sekt hérna.“

Martial sat allan tímann á varamannabekk Manchester United í síðasta leik liðsins gegn Leicester og hafði hann orðrómar þess efnis að hann væri á förum frá liðinu verið háværir.

Talið er að sekt Martial hafi verið 180 þúsund pund eða tæpar 25 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×