Fótbolti

Kolbeinn ekki í leikmannahópi Nantes í dag

Einar Sigurvinsson skrifar
Kolbeinn spilaði síðast landsleik á móti Frakklandi á EM 2016.
Kolbeinn spilaði síðast landsleik á móti Frakklandi á EM 2016. vísir/getty
Kolbeinn Sigþórsson er enn utan leikmannahóps franska úrvalsdeildarliðsins Nantes. Liðið mætir Rúnari Alex Rúnarssyni og félögum í Dijon.

Þetta er annar leikur Nantes á tímabilinu og í annað sinn sem Kolbeinn er ekki í leikmannahópnum.

Leikmannaglugginn í Frakklandi lokar um mánaðarmótin og er talið að Nantes vilji selja Kolbein fyrir þann tíma.

Kolbeinn hefur spilað 33 leiki fyrir Nantes og skorað í þeim fjögur mörk. Síðasti leikur hans með liðinu var í lokaumferð frönsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð þar sem hann spilaði í  15 mínútur gegn Strasbourg Alsace.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×