Fótbolti

AZ vann stórsigur í fyrsta leik Alberts

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Albert byrjaður að spila með AZ
Albert byrjaður að spila með AZ vísir/getty
Albert Guðmundsson lék sinn fyrsta leik fyrir AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið heimsótti Emmen en Albert var keyptur til AZ á dögunum frá Hollandsmeisturum PSV Eindhoven.

Albert hóf leik á bekknum en kom inná á 65.mínútu. Þá var staðan orðin 1-3 fyrir AZ en sjö mínútum eftir innkomu Alberts í sóknina bætti AZ við fjórða marki sínu.

Fleiri mörk voru ekki skoruð og lokatölur því 1-4 sigur í fyrsta leik Alberts með liðinu.

AZ Alkmaar hefur byrjað deildina af miklum krafti því liðið vann einnig stórsigur í fyrstu umferð þar sem NAC Breda lá í valnum en þá urðu lokatölur 5-0 fyrir AZ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×