Fótbolti

Björn Bergmann með tvö í sigri Rostov

Anton Ingi Leifsson skrifar
Björn í leik með Íslandi á HM.
Björn í leik með Íslandi á HM. vísir/vilhelm
Björn Bergmann Sigurðarson gerði tvö mörk er FC Rostov rúllaði yfir Yenisey Krasnoyarsk, 4-0, í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Björn Bergmann kom Rostov yfir á 31. mínútu og fjórum mínútum síðar tvöfaldaði hann forystuna með öðru marki sínu.

Í síðari hálfleik bættu svo þeir Aleksey Ionov og Ayaz Gulilev við sitt hvoru markinu. Öruggur 4-0 sigur Rostov sem er með níu stig í þriðja sætinu.

Björn Bergmann spilaði fyrstu 77 mínútur leiksins en Ragnar Sigurðsson og Sverrir Ingi Ingason stóðu vaktina allan leikinn í vörn Rostov.

Rostov hefur einungis fengið á sig eitt mark í fyrstu fjórum leikjunum og fer vel af stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×