Viðskipti innlent

Orka náttúrunnar stærsta raforkusalan en er þó með hæsta verðið

Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar
Flutningur og dreifing rafmagns er ekki á samkeppnismarkaði ólíkt framleiðslu og sölu.
Flutningur og dreifing rafmagns er ekki á samkeppnismarkaði ólíkt framleiðslu og sölu. ON
Rúmlega átta prósenta munur er á verði raforku hjá ódýrustu og dýrustu raforkusölunum. Dýrasta raforkusalan, Orka náttúrunnar, er jafnframt stærsta fyrirtækið á markaðinum.

Á vefsíðunni Aurbjorg.is má nú finna verðsamanburð á öllum raforkusölum án virðisaukaskatts. Ódýrasta rafmagnið býður Orka heimilanna, sem hóf starfsemi í ársbyrjun 2018. Þar er hver kílóvattstund verðlögð á 5,89 krónur. Orkubú Vestfjarða fylgir fast á hælana með verðið 5,90 krónur.

Dýrust er Orka náttúrunnar, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, sem selur hverja kílóvattstund 6,43 krónur, síðan HS Orka með verðið 6,35 krónur. Neytendur geta keypt rafmagn af hverjum sem er óháð búsetu á landinu og sama gildir um húsfélög. Þess ber þó að geta að rafmagnskostnaður heimila skiptist í tvennt. Annars vegar kostnaður vegna raforkusölu sem er á samkeppnismarkaði og hins vegar vegna raforkudreifingar þar sem fyrirtækin hafa einokun á afmörkuðu landsvæði. Þannig geta neytendur aðeins reynt að lækka hluta af heildarkostnaðinum.

„Við endurskoðum reglulega okkar verð en það er oft þannig að hinir bíða og setja verðin aðeins undir. Við verðleggjum okkur á eigin forsendum og þetta var niðurstaðan um síðustu áramót miðað við arðsemiskröfur, kostnað og annað slíkt,“ segir Bjarni Már Júlíusson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar.

Önnur skýring, að sögn Bjarna, er að Orka náttúrunnar ráðstafar arði fyrirtækisins í ýmis þróunarverkefni sem lúta að orkuskiptum og að draga úr losun koltvísýrings. Hann segir að neytendur þurfi einnig að hafa í huga hvar peningarnir endi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×