Innlent

UMFG kærir fyrrverandi gjaldkera fyrir fjárdrátt

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá Grundarfirði.
Frá Grundarfirði. vísir/vilhelm
Ungmennafélag Grundarfjarðar, UMFG, hefur kært fyrrverandi gjaldkera félagsins fyrir fjárdrátt. Héraðssaksóknari hefur málið til rannsóknar.

Maðurinn sat í stjórn UMFG um árabil og gegndi embætti gjaldkera fram til ársins 2015 að minnsta kosti.

Samkvæmt upplýsingum frá Héraðssaksóknara er kæra UMFG til rannsóknar hjá embættinu. Ekki var hægt að veita frekari upplýsingar um efni kærunnar.

Ragnar Smári Guðmundsson formaður UMFG vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×