Fótbolti

Björn Daníel og félagar höfðu betur í Íslendingaslag

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Björn Daníel Sverrisson (til vinstri) í leik með AGF
Björn Daníel Sverrisson (til vinstri) í leik með AGF vísir/getty
Tveir Íslendingar voru í eldlínunni þegar AGF og SönderjyskE mættust í Árósum í dag í fjórðu umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Björn Daníel Sverrisson lék allan leikinn fyrir heimamenn og hjálpaði liðinu að innbyrða sinn fyrsta sigur í mótinu en liðið hafði gert jafntefli í öllum þremur leikjum sínum til þessa.

Mustapha Bundu gerði eina mark leiksins eftir rúmlega hálftíma leik. Lokatölur 1-0.

Eggert Gunnþór Jónsson hóf leikinn á varamannabekk SönderjyskE en kom inná stundarfjórðungi fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×