Innlent

Vísar ávirðingum minnihlutans og Ragnars Þórs til föðurhúsanna

Atli Ísleifsson skrifar
Heiða Björg Hilmarsdóttir er formaður velferðarráðs og varaformaður Samfylkingarinnar.
Heiða Björg Hilmarsdóttir er formaður velferðarráðs og varaformaður Samfylkingarinnar. fréttablaðið/Ernir
Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar og varaformaður Samfylkingarinnar, vísar ávirðingum minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur og formanns VR  til föðurhúsanna í einu og öllu.

Minnihlutaflokkarnir og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, lýstu í sameiginlegri yfirlýsingu yfir áhyggjum af „þekkingarleysi“ Heiðu Bjargar á húsnæðismálum vegna orða sem hún lét falla í Vikulokunum á Rás 1. Í þættinum sagði Heiða Björg að þúsund íbúðir væru í byggingu á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga. „Þetta er rangt,“ sagði í yfirlýsingunni minnihlutans og formanns VR.

Heiða Björg svaraði svo fyrir sig á Facebook-síðu sinni í kvöld.

„1. Reykjavíkurborg hefur úthlutað lóðum og greitt stofnframlög með yfir 1000 íbúðum óhagðaradrifinna húsnæðisfélaga. Meðal annars til Bjargs, byggingarfélags launafólks. Að halda öðru fram stangast á við staðreyndir eins og sjá má í meðfylgjandi umsögn fjármálastjóra Reykjavíkurborgar og á meðfylgjandi mynd.

2. Það er beinlínis rangt að byggingarréttargjald standi í vegi fyrir byggingu félagslegs húsnæðis eins og fram kemur einnig í meðfylgjandi umsögn frjármálastjóra Reykjavíkur. Staðreyndin er sú að ekkert sveitarfélag í landinu stendur eins myndarlega að uppbyggingu félagslegs húsnæðis og húsnæðis í samvinnu við verkalýðshreyfinguna og husnæðisfelög sem ekki eru rekin i hagnðarskyni, og Reykjavík gerir. Ef önnur sveitarfélög á höfuðborgasvæðinu kæmu að þessu málum með jafn öflugum hætti og Reykjavík væri hér enginn húsnæðisvandi.

Ávirðingum minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur er því vísað til föðurhúsanna í einu og öllu,“ segir í færslunni.

Að neðan má sjá færslu Heiðu Bjargar og myndina sem hún vísar í í textanum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×