Erlent

Melania Trump segir LeBron gera góða hluti

Bergþór Másson skrifar
Melania og Donald Trump
Melania og Donald Trump Vísir/Getty
Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, segir í opinberri yfirlýsingu til sjónvarpsstöðvarinnar CNN að hún telji körfuboltamanninn LeBron James vera að gera góða hluti fyrir næstu kynslóð Bandaríkjanna.

Forsetafrúin gaf út þessa yfirlýsingu eftir að eiginmaðurinn hennar og forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, kallaði LeBron James heimskan á Twitter-síðu sinni.

Sjá einnig: Trump gerir lítið úr Lebron James



Melania segir í yfirlýsingunni að hún sé opin fyrir því að heimsækja nýopnaðan grunnskóla LeBrons í heimabæ sínum Akron.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×