Lífið

Rebel Wilson deilir myndum frá Íslandsdvölinni

Bergþór Másson skrifar
Hollywood stjarnan Rebel Wilson
Hollywood stjarnan Rebel Wilson Vísir/Getty

Ástralska leikkonan Rebel Wilson var stödd á Íslandi yfir verslunarmannahelgina. Hún birti myndbönd og myndir af ferðum sínum á Instagram síðu sinni í gær og í dag.

Sjá einnig: Rebel Wilson á íslenskum jökli

Sígildi slagarinn „Cold as Ice“ eftir hljómsveitina Foreigner hljómar undir myndbandinu af Wilson uppi á jökli og leikur hún sér að orðum á kómískan hátt þegar hún skrifar „Cold as Iceland“ undir myndbandið.

Wilson var á ferð um Suðurlandið og kom meðal annars við í Kerinu og á Þingvöllum ásamt vinum sínum.

Í dag birti hún bráðskemmtilegt myndband af sér á snjósleða þess á milli sem hún borðaði vínarbrauð eins og þekkjast í íslenskum bakaríum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×