Innlent

Vilhjálmur jafnaði heimsmet

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Vilhjálmur Einarsson hefur oftast orðið íþróttamaður ársins, eða fimm sinnum. Afrekið sem hann vann árið 1956 þegar hann hlaut silfurverðlaun í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne er enn eitt stærsta afrek sem íslenskur íþróttamaður hefur unnið, segir í bókinni Hetjurnar okkar.
Vilhjálmur Einarsson hefur oftast orðið íþróttamaður ársins, eða fimm sinnum. Afrekið sem hann vann árið 1956 þegar hann hlaut silfurverðlaun í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne er enn eitt stærsta afrek sem íslenskur íþróttamaður hefur unnið, segir í bókinni Hetjurnar okkar.
Vilhjálmur Einarsson bætti eigið Íslandsmet í þrístökki frá því í Melbourne 1956 er hann stökk 16,70 metra á frjálsíþróttamóti í Reykjavík og var það þá næstlengsta stökk í heimi. Þetta Íslandsmet hans stendur enn. „Stórkostlegt afrek sem allar milljónaþjóðir yrðu stoltar af,“ var skrifað á forsíðu Morgunblaðsins um afrek Vilhjálms undir mynd sem sýnir hann fara fram hjá öllum merkjum vallarins.

„Það afrek er annað bezta þrístökks­afrek sem íþróttasagan getur um. Þar til á föstudaginn hefði þessi árangur Vilhjálms verið jafn staðfestu heimsmeti í greininni, sem Rússinn Fedosojev átti. En á föstudaginn stökk Pólverjinn Josef Schmidt 17,03 m, og er ekki vitað annað um það afrek en það verði staðfest sem heimsmet“ stóð á forsíðu blaðsins. „Stökksería Vilhjálms var með eindæmum jöfn og góð, svo góð að hún hlýtur að skjóta beztu þrístökkvurum heims skelk í bringu,“ stóð enn fremur.

Í umfjöllun um mótið kemur fram að Vilhjálmur hafi verið heppinn hreinlega að ná mótinu. Það hafi byrjað klukkan fjögur á laugardeginum en klukkan 14 á sunnudeginum. Vilhjálmur hélt að mótið byrjaði einnig klukkan fjögur og mætti hann fimm mínútur fyrir tvö og sleppti fyrstu tilraun.

En stökkserían var glæsileg: 16,23 í fyrsta stökki, 16,30 í öðru og aftur 16,23 í því þriðja. Svo komu 16,46 metrar áður en risastökkið leit dagsins ljós. Fyrsta stökkið var 6,05 metrar, miðstökkið hljóðaði upp á 5,02 og lokastökkið var 5,63 metrar eða samtals 16,70 metrar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×