Viðskipti innlent

Ekki ljóst hverjir fengu meira en almenna hækkun kjararáðs

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Laun þeirra sem heyrðu undir kjararáð voru færð niður með lækkunarlögunum árið 2008.
Laun þeirra sem heyrðu undir kjararáð voru færð niður með lækkunarlögunum árið 2008. Fréttablaðið/stefán
Ekki liggur fyrir hve margir forstöðumenn ríkisstofnana eða forstjórar ríkisfyrirtækja hækkuðu umfram almenna hækkun kjararáðs í desember 2011. Ákvarðanir einstakra starfsmanna voru ekki birtar heldur kynntar hverjum og einum bréfleiðis.

Í kjölfar efnahagshrunsins voru samþykkt árið 2008 á Alþingi lækkunarlögin svokölluðu. Þau fólu í sér að laun þeirra sem undir ráðið heyrðu skyldu lækka að meginstefnu um fimm til fimmtán prósent. Árið 2009 voru síðan forstjórar ríkisfyrirtækja færðir undir valdsvið stjórnvaldsins. Laun hópsins skertust í samræmi við lagabókstafinn en launin færð í fyrra horf í árslok 2011.

Kjararáð var lagt niður í júnílok. Síðasta verk ráðsins var að ákvarða laun 48 aðila sem undir það heyrðu. Þegar fréttir voru sagðar af því hve mikið hver og einn hafði hækkað kom í ljós að allar upplýsingar um laun hvers og eins höfðu ekki verið birtar. 

Svanhildur Kaaber.Vísir
Til að mynda var fullyrt í Fréttablaðinu að föstum yfirvinnueiningum forstjóra Landspítalans hefði fjölgað úr 100 í 135 frá síðustu ákvörðun ráðsins árið 2010. Hið rétta var að samhliða almennu hækkuninni í desember 2011 var yfirvinnueiningum hans fjölgað í 133. Sú ákvörðun, líkt og aðrar, hefur aldrei verið birt.

Fréttablaðið óskaði eftir því við fjármálaráðuneytið að það veitti afrit af þeim ákvörðunum sem aldrei hafa verið birtar auk lista yfir launaflokk og yfirvinnueiningar þeirra sem heyrðu undir kjararáð. Sama beiðni var send á kjararáð, sjálfvirkt svar barst sem sagði að ráðið hefði verið lagt niður.

„Kjararáð var sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem bar ábyrgð á að varðveita eigin gögn. Kjararáð hefur ekki sent ráðuneytinu afrit af úrskurðum sínum enda engin lagaskylda til þess,“ segir í svari ráðuneytisins.

„Ég get ekki sagt að ég muni hvaða embætti eða hópar það voru. Ekki án þess að hafa gögnin fyrir framan mig,“ segir Svanhildur Kaaber, þáverandi formaður kjararáðs, aðspurð um hvort fleiri en forstjóri Landspítalans hafi fengið slíka hækkun. Hún staðfesti að fleiri hefðu fengið slíka hækkun.

Í lögum sem giltu um störf kjara­ráðs árið 2011 var kveðið á um að ráðið skyldi birta úrskurði sína og ákvarðanir. Þeirri spurningu var beint til fjármálaráðuneytisins hvort það teldi að ráðið hefði uppfyllt lagalega skyldu sína með þessari framkvæmd. Svar við því erindi hefur ekki borist.


Tengdar fréttir

Ekki stjórnvalda að leysa almennar kjaradeilur en þau geti liðkað fyrir

Forsætisráðherra segir það ekki stjórnvalda að leysa almennar kjaradeilur heldur aðila vinnumarkaðarins. Þó sé hægt að liðka fyrir með aðgerðum eins og skattalækkunum á lægstu stéttir. Þingmaður Viðreisnar telur að ríkið eigi að beita sér fyrir lækkun matvælaverðs og vaxta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×