Íslenski boltinn

Ætla sér í úrslitaleik gegn Ajax

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Þór/KA hefur leik í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Þór/KA hefur leik í Meistaradeild Evrópu í kvöld. vísir/þórir
Íslandsmeistarar Þórs/KA eru nú staddar í Norður-Írlandi þar sem þær munu taka þátt í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Fyrirkomulagið er þannig að fjögur lið leika í riðli og kemst efsta lið riðilsins áfram í 32-liða úrslit keppninnar en Þór/KA hefur tvívegis leikið í Meistaradeild Evrópu og fór liðið í bæði skiptin beint í 32-liða úrslit.

Þór/KA er í riðli með Norður-Írlandsmeisturum Linfield, Írlandsmeisturum Wexford Youths og hollenska stórveldinu Ajax sem kemur inn í keppnina sem bikarmeistari Hollands.

Donni: Ætlum okkur áfram úr riðlinum
Donni, þjálfari Þórs/KA.vísir/eyþór
Á heimasíðu Þórs má finna veglega upphitun fyrir keppnina þar sem meðal annars er ítarlegt viðtal við þjálfara liðsins, Halldór Jón Sigurðsson, jafnan kallaður Donni.

„Þetta verður mikil reynsla fyrir okkur öll. Fyrir Þór/KA, fyrir stelpurnar, fyrir mig og okkur öll sem standa að þessu. Þetta er búið að vera mikið ferli og mikið umstang fyrir þessa keppni. Þetta er stórt tækifæri fyrir leikmennina að sýna sig og verður án efa mjög gaman,“ segir Donni.

Hann kveðst hafa kynnt sér andstæðingana vel og reiknar með Ajax sem sterkasta liðinu.

„Við vitum mest um Ajax. Ég er með aðgang að mörgum leikjum hjá þeim. Þær eru sterkasta liðið, eru í efsta styrkleikaflokknum í riðlinum. Það verður klárlega erfiðasti leikurinn. Ef allt er eðlilegt verður það úrslitaleikurinn í riðlinum,“ segir Donni í samtali við Þórsport sem sjá má í heild sinni neðst í fréttinni.

Leikið á gervigrasi í kvöldÞór/KA hefur leik í kvöld gegn heimakonum í Linfield og hefst leikurinn klukkan 18:30. 

Allir leikir riðlakeppninnar fara fram í höfuðborginni Belfast en í kvöld spilar Þór/KA á Seaview leikvangnum þar sem er gervigras. Völlurinn tekur tæplega 3500 manns í sæti.

Á heimasíðu Þórs má einnig nálgast upphitunarpistla fyrir hvern leik. Þar segir jafnframt að til standi að sýna leikina beint í gegnum Youtube-síðu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×