Lífið

Jarðar karlrembur með tvískinnung á Twitter

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fjölmargar karlrembur fengu að kenna á því.
Fjölmargar karlrembur fengu að kenna á því.
Lindsey stofnaði vefsíðuna Cards Against Harassment árið 2014 sem er vettvangur fyrir konur til að berjast gegn áreitni af ýmsum toga.

Lindsey er einnig virk á Twitter undir notendanafninu @CardsAgstHrsmt og hefur hún á undanförnum vikum verið að jarða karlmenn sem hafa gert lítið úr konum á veraldarvefnum.

Þeir karlmenn eiga það sameiginlegt að hafa gert lítið úr konum opinberlega og virðast þeir flestallir einbeita sér að því hvernig myndir konur deila á Instagram.

Lindsey hefur tekið saman myndir af umræddum mönnum og sett þær í samhengi við orðin sem þeir létu falla. Það verður að segjast alveg eins og er að þessir karlmenn koma ekkert sérstaklega vel út í yfirferð Lindsey eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×