Innlent

Ósátt við að ráðherra hafni að greiða 911 milljóna rekstrartap

Sveinn Arnarsson skrifar
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Hlíð hét Elliheimili Akureyrar er það var vígt 29. ágúst 1962 á 100 ára afmæli Akureyrarbæjar.
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Hlíð hét Elliheimili Akureyrar er það var vígt 29. ágúst 1962 á 100 ára afmæli Akureyrarbæjar. Fréttablaðið/Heiða
Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, hefur hafnað kröfu Akureyrarbæjar um að ríkið greiði bænum rúmlega 900 milljónir króna sem bærinn telur ríkið skulda vegna uppsafnaðs halla Öldrunarheimila Akureyrar síðustu sex árin.

Akureyrarbær hefur rekið öldrunarheimilin Hlíð og Lögmannshlíð á rammasamningi undanfarin ár. Í bréfi Akureyrarkaupstaðar til velferðarráðuneytisins var þess krafist að ríkið yfirtaki reksturinn í árslok ef það neitaði að greiða uppsafnaðan halla öldrunarheimilanna.

Auk aldraðra Akureyringa eiga aldraðir íbúar nágrannasveitarfélaga kost á þjónustu á öldrunarheimilunum samkvæmt sérstökum samningi við nágrannasveitarfélögin.

Ríkið hefur sent bænum bréf þess efnis að það neiti að greiða tapið og bendir á að Akureyrarbær hafi tekið ákvörðun um að greiða með rekstri öldrunarheimilanna.

„Með því telur ráðuneytið ekki að stofnist krafa á hendur ríkinu. Ráðuneytið hafnar kröfu Akureyrarbæjar um að ríkið greiði bænum uppsafnað rekstrartap,“ segir í bréfi til bæjarins sem tveir starfsmenn ráðuneytisins skrifa fyrir hönd heilbrigðisráðherra.



Hilda Jana Björnsdóttir. Fréttablaðið/Auðunn
„Við urðum fyrir verulegum vonbrigðum með svarbréf velferðarráðuneytisins og finnst okkur svarið endurspegla þá afstöðu ríkisins að fjárlögin séu æðri faglegum skyldum sem ráðuneytið sjálft setur,“ segir Hilda Jana Gísladóttir, oddviti Samfylkingar í bæjarstjórn Akureyrar.

„Við fylgjumst að sjálfsögðu vel með málaferlum Garðabæjar við ríkið vegna sambærilegra deilna. Nú setjumst við yfir málið og íhugum næstu skref, en í okkar huga er mikilvægast að þessi deila bitni ekki á þjónustu við aldraða í bæjarfélaginu,“ bætir Hilda Jana.

Forsvarsmenn Akureyrarbæjar munu nú fara ítarlega yfir málið og verður það meðal annars rætt á nýjan leik á fundi bæjarráðs næstkomandi fimmtudag. Málaferli Garðabæjar og ríkis í sambærilegu máli munu verða prófsteinn á það hvort Akureyrarbær leiti réttar síns til að knýja á um að ríkið greiði uppsafnaðan halla öldrunarheimilanna.

Íbúar öldrunarheimilanna eru alls 182. Þar af eru hjúkrunarrými fyrir 155, dvalarrými fyrir 10 og 17 hjúkrunarrými fyrir tímabundna­ dvöl og hvíldardvöl. Um 260 starfsmenn vinna hjá Öldrunarheimilum Akureyrar í um 220 stöðugildum. Rekstur öldrunarheimilanna er um 2,5 milljarðar á ári.

Ekki reyndist unnt að ná í Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra vegna málsins. Hún er stödd erlendis í fríi. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×