Erlent

Ítalskir læknar reiðir ríkisstjórninni fyrir að frysta bólusetningarlög

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá samkomu andstæðinga bólusetninga í Róm í febrúar.
Frá samkomu andstæðinga bólusetninga í Róm í febrúar. Vísir/EPA
Ríkisstjórn hægrimanna og popúlista á Ítalíu hefur samþykkt að fresta gildistöku laga sem kveða á um að börn þurfi að vera bólusett til að fá inngöngu í leik- og forskóla. Lögin voru sett eftir mislingafaraldur þar sem þúsundir manna smituðust í fyrra.

Efri deild ítalska þingsins samþykkti breytingatillögu ríkisstjórnarinnar á föstudag en neðri deildin á enn eftir að greiða atkvæði um hana. Ríkisstjórnarflokkarnir tveir, Fimm stjörnu hreyfingin og öfgahægriflokkurinn Bandalagið, voru mótfallnir lögunum þegar þau voru samþykkt í tíð fyrri ríkisstjórnar í fyrra. Þeir telja lögin stuðla að aðgreiningu barna á skólastiginu.

Lögin kveða á um að foreldrar þurfi að sýna fram á að börn þeirra hafi fengið tíu hefðbundin bóluefni, þar á meðal gegn mislingum, stífkrampa og mænusótt, að sögn CNN-fréttastofunnar. Með breytingartillögunni yrðu lögin felld úr gildi í eitt ár.

Matteo Salvini, leiðtogi Bandalagsins og innanríkisráðherra, sagði fyrr í sumar að skyldubólusetningar væru „gagnslausar og í mörgum tilfellum hættulegar ef ekki skaðlegar“.

Vara við afleiðingunum fyrir tíðni bólusetninga

Læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn hafa varað við afleiðingum fyrir bólusetningatíðni á Ítalíu. Hún hefur verið undir þeim 95% sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur mælt með til að tryggja svonefnt hjarðónæmi. Hjarðónæmi á að tryggja að þeir sem geta ekki fengið bóluefni af læknisfræðilegum ástæðum njóti einnig verndar fyrir sjúkdómunum sem bólusett er fyrir.

Undirróður gegn bólusetningum sem ýmsir hópar samsæriskenningasmiða og kuklara hafa ýtt undir undanfarin ár hafa fallið í sérstaklega frjóan jarðveg á Ítalíu. Dómstóll í Rimini komst að þeirri niðurstöðu árið 2012 að tengsl væru á milli svonefndra MMR-bólusetninga og einhverfu þrátt fyrir að engar vísindalegar rannsóknir bendi til þess.

Dómnum var snúið við árið 2015 en CNN segir að málið hafi haft áhrif á traust Ítala til bólusetninga. Aðeins 85% ítalskra barna fengu fyrsta skammt af bóluefni gegn mislingum það ár.

Rúmlega fimm þúsund manns smituðust af mislingum í faraldri sem gekk yfir Ítalíu í fyrra. Afgerandi meirihluti þeirra sem smituðust, 89%, hafði ekki verið bólusettur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×