Golf

Öruggur sigur Birgis og Axels í fyrsta leik á EM

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Axel Bóasson er Íslandsmeistari í golfi 2018
Axel Bóasson er Íslandsmeistari í golfi 2018 mynd/golf.is
Íslandsmeistarinn Axel Bóasson og Birgir Leifur Hafþórsson unnu fyrsta leik sinn á EM í golfi örugglega í Skotlandi í dag. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir töpuðu sínum fyrsta leik.

Í dag hófst keppni á EM í golfi. Nýju móti sem fór af stað í tengslum við nýtt fyrirkomulag á Evrópumeistaramótum þar sem keppt er í fjölmörgum íþróttum á sama tíma, meðal annars sundi og frjálsum íþróttum.

Í golfkeppninni er keppt í liðakeppni í svokölluðum fjórbolta í holukeppni. Þá leika báðir keppendur beggja liða holurnar og betra samanlagt skor liðsins telur á hverri holu.

Birgir Leifur og Axel mættu þeim Lars Buijs og Christopher Mivis í fyrsta leik. Þeir unnu 6&5, það er þeir voru með sex holu forystu þegar aðeins fimm holur voru eftir og því ómögulegt fyrir Belgana að ná þeim og leik hætt.

Ólafía Þórunn og Valdís Þóra mættu Michele Thomson og Meghan Maclaren frá Bretlandi. Þær töpuðu viðureigninni 5&4.

Keppt er í riðlum á mótinu þar sem fjögur lið eru í hverjum riðli. Efsta lið hvers riðli komast í undanúrslit.

Bæði pör eru aftur í eldlínunni á morgun. Þá mæta Axel og Birgir Leifur ítölsku liði en Ólafía og Valdís keppa gegn Finnum. Keppt er á Gleneagles vellinum í Skotlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×