Erlent

Erkibiskupinn segir af sér

Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar
Frans páfi, þungt hugsi.
Frans páfi, þungt hugsi. Vísir/Getty
Frans páfi hefur fallist á afsagnarbeiðni ástralska erkibiskupsins Philips Wilson sem var dæmdur fyrir að hafa vísvitandi haldið barnaníði leyndu.

Wilson varð í vor æðsti prestur innan raða kaþólsku kirkjunnar sem hefur hlotið slíkan dóm. Honum var gert að sök að hafa ákveðið að halda frásögnum fórnarlamba annars prests leyndum til þess að verja orðspor kirkjunnar. Hann hlaut 12 mánaða fangelsisdóm sem hann síðan áfrýjaði.

Þrátt fyrir ákall um afsögn hans úr mörgum áttum stóð Wilson fast á því að hann myndi ekki stíga af stóli fyrr en hann hefði nýtt öll lagaleg úrræði. Vatíkanið greindi hins vegar frá því í gær að páfinn hefði fallist á afsagnarbeiðni Wilsons.




Tengdar fréttir

Erkibiskup fundinn sekur um hylmingu

Dómstóll í Ástralíu telur sannað að kaþólskur erkibiskup hafi reynt að hylma yfir barnaníð innan kirkjunnar á áttunda áratug síðustu aldar.

Erkibiskup í 12 mánaða fangelsi

Kaþólskur erkibiskup í Ástralíu hefur verið dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir að hylma yfir kynferðisbrot innan kirkjunnar á áttunda áratug síðustu aldar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×