Innlent

Skiptar skoðanir Dana um Kjærsgaard-málið

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Pia Kjærsgaard, forseti danska þingsins, á fundinum á Þingvöllum.
Pia Kjærsgaard, forseti danska þingsins, á fundinum á Þingvöllum. VÍSIR/ANTON BRINK
Danskir fjölmiðlar hafa sýnt mikinn áhuga á mótmælaaðgerðum íslenskra þingmanna vegna þátttöku danska þingforsetans Piu Kjærsgaard í hátíðarfundi Alþingis.

Auk viðtala við Kjærsgaard sjálfa hafa danskir miðlar reynt að ná tali af Steingrími J. Sigfússyni, forseta Alþingis, og rætt við þingkonurnar Helgu Völu Helgadóttur og Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur sem báðar mótmæltu nærveru Piu á hátíðarfundinum hvor með sínum hætti.

Það eru ekki eingöngu fjölmiðlar frændþjóðarinnar sem sýna málinu áhuga heldur hafa virkir í athugasemdum Extrablaðsins ekki látið sitt eftir liggja og ausið svívirðingum yfir Íslendinga og reyndar einnig múslima sem leitað hafa hælis í Danmörku. Margir segjast helst vilja senda Íslendingum allt það fólk eða jafnvel einnig Grænlendingum með vonum um að það verði ísbjörnum að bráð. Svo mikið lá þeim heitustu á hjarta að stjórnendur vefs Extrablaðsins voru teknir að eyða út svæsnustu athugasemdunum síðdegis í gær.

Innan um má þó einnig sjá athugasemdir með þökkum til þeirra þingmanna sem sniðgengu ræðu Piu eða gagnrýndu nærveru hennar.

Í viðtölum í heimalandi sínu fer Pia Kjærsgaard hörðum orðum um þingmenn Pírata. Í viðtali við TV2 sagðist hún líta svo á að Píratar höguðu sér eins og illa upp aldir unglingar og ættu að tileinka sér betri mannasiði.



Pia Kjærsgaard sendir Helgu Völu Helgadóttur tóninn.Vísir/Hanna
Kjærsgaard gagnrýnir einnig Helgu Völu Helgadóttur og Loga Einarsson, þingmenn Samfylkingarinnar, og segir ljóst að þau viti greinilega ekki hvað sé að gerast í heiminum og þekki ekki sinn eigin systurflokk í Danmörku.

Yfirlýsing kom frá forseta Alþingis um miðjan dag í gær. Þar segir að það séu vonbrigði að heimsókn danska þingforsetans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíðarhöldin í tilefni fullveldisafmælisins.

„Mér finnst auðvitað leitt að dagskráin hafi leitt til þess að ákveðinn blettur kom á þessi hátíðarhöld,“ segir Helga Vala Helgadóttir um yfirlýsingu forsetans og bætir við: „Það er hann sem fer með dagskrárvaldið en ekki sá sem á hana bendir.“

Um athugasemdir Piu segir Helga Vala að jafnaðarmenn á Íslandi þekki vel til systurflokksins í Danmörku og þyki leitt að hann hafi villst af leið frá jöfnuði, umhyggju fyrir öðru fólki og mannréttindum.

Deilt hefur verið um hvort og á hvaða tíma þingmenn fengu upplýsingar um þátttöku Piu í hátíðarhöldunum en fyrir liggur að tilkynning þess efnis kom inn á vef þingsins 20. apríl síðastliðinn.

Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata og fulltrúi í forsætisnefnd, sendi í gær fyrirspurn á forseta þingsins og óskaði svara um ferlið að baki ákvörðun um boð Kjærsgaard í afmælið, hvenær ákvörðunin hefði verið tekin og hver ferill ákvörðunarinnar hefði verið. Deilt hefur verið um hversu upplýstir þingmenn voru um komu forseta danska þjóðþingsins á hátíðarfundinn á Þingvöllum í fyrradag. 


Tengdar fréttir

Pia segir gagnrýni þingmanna fáránlega og til skammar

Þetta kemur fram í frétt á vef danska miðilsins TV2 þar sem rætt er við Piu og Helgu Völu Helgadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, sem gekk af hátíðarfundinum þegar sú fyrrnefnda tók til máls.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×