Sport

Sló 36 ára gamalt Íslandsmet

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Thelma Lind Kristjánsdóttir
Thelma Lind Kristjánsdóttir mynd/frí
Kringlukastarinn Thelma Lind Kristjánsdóttir úr ÍR bætti í gærkvöld 36 ára gamalt Íslandsmet í greininni. Hún kastaði tæpum metra lengra en gamla metið.

Thelma Lind kastaði kringlunni 54,69 metra við frábærar aðstæður á Kast­móti UMSB í Borgarnesi. Gamla metið var 53,86 metrar og setti Guðrún Ingólfsdóttir það árið 1982.

Thelma er nýkrýndur Íslandsmeistari í greininni því hún hafði betur gegn Ásdísi Hjálmsdóttur á Meistaramóti Íslands á Sauðárkróki síðustu helgi. Besta kast hennar fyrir gærkvöldið var 52,80 metrar og því bætti hún sitt persónulega met um tæpa tvo metra.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×