Innlent

Störf Óbyggðanefndar dregist í sautján ár

Elísabet Inga Sigurðardóttir og Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ásta Ólafsdóttir, formaður Óbyggðanefndar.
Ásta Ólafsdóttir, formaður Óbyggðanefndar. Vísir/Einar
Störf Óbyggðanefndar hafa dregist í um að minnsta kosti 17 ár en nefndinni er ætlað að skilgreina eignarhald á þjóðlendum og eignarlöndum. Formaður nefndarinnar segir vinnuna mun flóknari en búist hafi verið við. Áætlaður heildarkostnaður er orðinn margfalt meiri en gert var ráð fyrir í upphafi.

Óbyggðanefnd tók til starfa árið 1998 og var ætlað að skilgreina eignarhald á þjóðlendum og eignarlöndum. Í upphafi var gert ráð fyrir að nefndin lyki störfum árið 2007 en nú er gert ráð fyrir að þeim ljúki ekki fyrr en árið 2024. Formaður nefndarinnar segir störf hennar hafa dregist á langinn þar sem vinnan sé mun flóknari en menn hafi búist við í upphafi.

„Þegar að nefndin fer að starfa þá kemur í ljós að þetta er miklu umfangsmeira, miklu fleiri skjöl sem þarf að skoða, og nefndin í upphafi tók þá afstöðu að það sé betra að rannsaka allt til hlítar, tryggja að öll skjöl séu komin fram áður en niðurstaðan er komin,“ segir Ása Ólafsdóttir, formaður Óbyggðanefndar.

„Svo til viðbótar kom efnahagshrun og strax í kjölfarið þá ákvað þáverandi ríkisstjórn að skera niður fjárheimildir til nefndarinnar. Þetta er, með réttu, ekki það verkefni sem er brýnast í efnahagskreppu.“

Sjá einnig: Upphaflegar áætlanir afar óraunhæfar

Framkvæmdastjóri nefndarinnar segir á Vísi í dag kostnaður við reksturinn hafi að auki verið vanáætlaður frá upphafi. En kostnaðaráætlanir gerðu ráð fyrir að störf nefndarinnar myndu kosta 520 milljónir á núvirði hefði nefndinni tekist að skila af sér árið 2007. Nú gera áætlanir ráð fyrir að heildarkostnaðurinn frá ársbyrjun 1999 verði tæpir 1,9 milljarðar króna.

Ása segir að kostnað við skjalaleit og gagnaöflun mun meiri en búist var við. En þar að auki hækki kostnaðurinn með tímanum.

„Eftir því sem að lengist í störfum nefndarinnar því fleiri ár líða þar sem fólk er að störfum, það kostar líka. þess vegna var það okkar sjónarmið síðustu ár, og mitt líka, að því fyrr sem þetta er búið því minna kostar það.“


Tengdar fréttir

Upphaflegar áætlanir afar óraunhæfar

Þegar óbyggðanefnd var komið á fót var reiknað með að hún lyki verkefnum sínum árið 2007 og kostnaður við hana yrði tæpar tíu milljónir króna árlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×