Körfubolti

Valur samdi við nýútskrifaðan Bandaríkjamann

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Brooke Johnson er ungur og efnilegur leikmaður
Brooke Johnson er ungur og efnilegur leikmaður mynd/valur
Valur hefur samið við bandaríska leikmanninn Brooke Johnson um að leika með liðinu á komandi tímabili í Domino's deild kvenna.

Johnson er nýútskrifuð úr UNLV háskólanum í Bandaríkjunum og var valin í úrvalslið Mountain West deildarinnar bæði 2017 og 2018. Henni var boðið til æfinga hjá Las Vegas Aces, sem spilar í WNBA, í vor eftir að síðasta tímabili lauk.

Johnson spilar stöðu bakvarðar eða leikstjórnanda. Hún skoraði 16,1 stig og tók 2,9 fráköst að meðaltali í leik í vetur.

Valur komst í úrslitaeinvígi Domino's deildarinnar í vor þar sem liðið tapaði í oddaleik gegn Haukum. Valskonur hefja leik í Domino's deildinni 3. október þegar liðið tekur á móti Skallagrím.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×