Formúla 1

Hamilton stal ráspólnum á lokahringnum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Félagarnir hjá Mercedes ræsa fremstir
Félagarnir hjá Mercedes ræsa fremstir vísir/getty
Lewis Hamilton verður á ráspól í Ungverjalandskappakstrinum eftir að hafa náð bestum tíma allra í tímatökunni í dag. Liðsfélagi hans Valtteri Bottas ræsir annar.

Kimi Raikkonen var með besta tímann fyrir síðasta hringinn í tímatökunni. Þar náðu Mercedes mennirnir að skafa af nokkur sekúndubrot og Hamilton varð fljótastur á 1:35,658 mínútu.

„Ferrari er búið að vera með bestu tímana alla helgina en við gerðum okkar besta til þess að vera sem næst þeim. Svo kom rigningin,“ sagði Hamilton eftir tímatökuna en það kyngdi niður rigningu á meðan tímatökunni stóð.

Raikkonen verður þriðji þegar ræst verður í kappakstrinum á morgun og liðsfélagi hans á Ferrari, Sebastian Vettel verður fjórði.

Stigakeppni ökuþóra er orðin tveggja hesta kapphlaup á milli Vettel og Hamilton. Hamilton er með 17 stiga forystu eftir sigur í Þýskalandi um helgina og miðað við niðurstöðu tímatökunnar er ljóst að Vettel verður að aka mjög vel á morgun ætli hann ekki að missa Hamilton of langt fram úr sér.

Ungverjalandskappaksturinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport á morgun frá klukkan 12:50.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×