Tónlist

Cardi B gefur út nýja tónlist í haust

Bergþór Másson skrifar
Cardi B í góðum fíling.
Cardi B í góðum fíling.
Rapparinn Cardi B tilkynnti það í beinni útsendingu á Instagram á dögunum að hún stefnir á að gefa út nýja tónlist í haust.

Cardi B gaf út plötuna „Invasion of Privacy“ síðastliðinn apríl. Platan hlaut góðar móttökur frá bæði aðdáendum sem og gagnrýnendum.

Óvíst er hvort Cardi ætli að gefa út nýja plötu eða nokkur lög, en í sömu Instagram útsendingu sagði hún að hún sé búin að vera koma fram þónokkrum lögum annara tónlistarmanna, og þau ættu að koma út í ágúst.

Eins og Vísir hefur fjallað um eignaðist Cardi dóttur í síðasta mánuði og hætti þess vegna við að fara á tónleikaferðalag með Bruno Mars.

Í Instagram útsendingunni hughreystir hún aðdáendur sína sem hafa kannski haldið að þeir fái ekki að sjá jafn mikið af henni vegna nýfædds barns hennar: „Ég ætla að vinna, lífið mitt er alls ekki búið, ég þarf bara að taka mér smá pásu, bara fyrir líkamann minn.“

Hér að neðan má sjá brot úr Instagram útsendingu Cardi.


Tengdar fréttir

Gengur illa að fylla í skarð Cardi B

Rapparinn Cardi B er hætt við að koma með Bruno Mars í tónleikaferðalag. Honum gengur illa að finna annan tónlistarmann til þess að fylla í skarð hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×